Flottar skvízur ha....frv..Sonja mí end Anný á deep dish þann 16 maí, þetta er sönnun þess að ég fór með í þetta sinn hehhe..bara gaman.
fimmtudagur, 31. maí 2007
Mynd vikunnar eða eitthvað þannig... :D
Flottar skvízur ha....frv..Sonja mí end Anný á deep dish þann 16 maí, þetta er sönnun þess að ég fór með í þetta sinn hehhe..bara gaman.
sunnudagur, 27. maí 2007
Ég er eins & norn...
En afmælið hjá henni frænku minni var flott, fengum sveppasúpu, svo lambakjöt & með því & auðvitað kaffi á eftir. Gaman að hitta alla ættingjana þar sem það gerist nú ekki oft því miður. Svona er Ísland í dag.
Foreldrar vorir brugðu sér í brullup hjá Halla frænda & hans frú Önnu Fanney, á meðan við systur fórum í ammæli.
Í dag erum við Mikael 2 heima meðan Baldur er að veiða... & ég er að bíða eftir símtali frá móður minni, hún ætlar að pikka okkur upp á eftir & ætlum að viða að skondrast í KR- bæinn með þeim & ætla ég mér að fá eitthvað að borða hjá þeim... vona að pabbi grilli hvítasunnumáltíð fyrir mig...!
Jæja, Liljan ætlar að fara ath, með þetta orðin svöng að tala um mat..hehehe..
Luv...LdyLilja..NORN!!!
þriðjudagur, 22. maí 2007
Er ekki alltaf pínu gaman af þessu????
1.ég veit að ég ætlaði bara að koma með eitt svona.. en svo sá ég þetta, varð að setja það inn... veriði nú væn að svara..gefa Liljunni lesefni svona þangað til ég fer að lesa Ísfólkið. Já mamma... má ég fá þær lánaðar hjá þér?
Hvað er uppáhalds jólalagið þitt?
2. Hvað borðaru í morgunmat ef þú borðar morgunmat?
3. Gerir þú rass-maga-læri æfingar heima hjá þér?
4. Ef þú vilt ganga í augun á hinu kyninu, hvað geriru?
5. Áttu hníf?
6. Ertu með athyglisbrest?
7. Hvað varstu að gera rétt áður en þú fórst á netið?
8. Hvaða 3 hluti keyptiru þér síðast?
9. Þú gætir ekki verið án??.?
10. Hvenar vaknaðiru í morgun?
11. Hvernig er hárið á þér á litinn í alvöru?
12. Mestu áhyggjur lífs þíns..?
13. Þú þolir ekki??
14. Uppáhalds staðurinn þinn í heimi?
15. Ömurlegasti staður í heimi? .
16. Ef þú mættir fara eitthvert NÚNA hvert sem er, hvert mundir þú fara?
17. Hvar verður þú hugsanlega eftir 10 ár?
18. Brenniru eða tekuru lit?
19. Hvað var það síðasta sem þú borðaðir?
20. Mundiru vilja vera prinsessa?
21. Hvaða lag syngur í sturtu?
22. Við hvað varstu hrædd við á nóttunni þegar þú varst lítil?
23. Síðast þegar þú fórst að hlægja, hvað var sona fyndið?
24. Uppáhalds teiknimyndin þín þegar þú varst lítil?
25. Hefuru lent í slysi?
26. Hver er háværasti vinur þinn/vinkona?
27. En lágværasti?
28. Er einhver skotinn í þér?
29. Hvaða lag mundir þú vilja láta spila í brúðkaupinu þínu ef þú værir að fara að gifta þig á morgun?
30. Hvað varstu að gera í gær kl 17:30?
31. Hvað langar þig mest?
32. Síðasta setningin sem þú heyrðir?
33. Þekkiru einhvern sem heitir Jón?
34. Síðasta lag sem þú heyrðir?
35. Ertu alveg ein eða er einhver nálægt þér? Ef svo er, hver?
36. Við hvern sagðiru ?ég elska þig? síðast og hver sagði það við þig síðast?
37. Er e-ð bleikt nálægt þér? Ef svo er hvað er það?
38. ertu með myspace? Hvar er forsíðumyndin tekin af þér og hvenar?
39. Langar þig í e-ð sem þú getur ekki fengið?
40. Hver er uppáhalds hljómsveitin þín ?
Knús á ykkur sem gefið ykkur tíma að svara, Mía þú líka!
Last day's...
Helgin var bara nokkuð róleg hjá mér, stráksinn minn búin að vera slappur, en allur að koma til núna & fer á leikskólann sinn á morgun.
Í gærdag kom svo hún ammsan mín & tókum við smá syrpu hérna eins & við gerum reglulega. Gott að eiga góða ömmu. Auðvitað breyttum við í leiðinni.
Svo var það eiginlega H-punkturinn í gærkveldi, Liljan fór til Míu sinnar í kaffi, & hárlengingu, fannst Míunni augabrúnirnar á mér eitthvað út úr Q & lagaði þær líka. Svo nú er Liljan orðin eitthvað meira en aðalskvízan í bænum... jejejeje!
Svo ætlar klippi-lita konan mín að koma hér við á eftir & skoða litinn á nýja hárinu, skjótast svo á heildsölunna kaupa þennan lit & heillita hárið mitt. Já þá verður verkið orðið fullkomið.
Jæja ætla kveðja núna & fara gera eitthvað í vinnunni minni.. þeas ganga frá þvotti :)
........................Luv..LadyLilja....................
miðvikudagur, 16. maí 2007
eitt svona!
1. Þekkirðu mig persónulega?
2. Hvað finnst þér um mig?
3. Langar þér að kynnast mér betur?
4. Myndirðu vilja koma með mér einni á eyðieyju í viku?
5. Ef þú mættir bara taka 3 hluti með þér á eyðieyjuna, hvað myndi það vera?
6. Hvað myndirðu gera ef þú værir fastur/föst í lyftu með mér?
7. Ertu með tattoo eða piercing?
8. Myndirðu gráta ef ég myndi deyja?
9. Hver er versti kækurinn þinn?
10. Hvað minnir þig á mig?
11. Myndirðu verja mig ef einhver væri að níðast á mér?
12. Ætlarðu að setja þetta á bloggið þitt svo að ég geti svarað þér á móti?
þriðjudagur, 15. maí 2007
Það hlaut að gerast..
Fór í morgun á fund út á leikskóla í sambandi við greininguna & þetta, spurð allskonar spurninga í sambandi við hann, vorum bæði látin svara einhverju spurningablaði með 100 spurningum & nú mun sálfr. frá félagsþjónustu fylgjast með honum í næstu viku 2 daga (þ.e.a.s sé hann ekki lasinn) & mæti ég þá aftur á fund eftir 2 vikur.
Þá verður sjálfsagt búið að fara yfir blöðin sem ég, Baldur & Sólveig deildarstjóri svöruðum & búið að "samræma" þetta eitthvað :)
Tók strákinn með mér heim þegar fundurinn var búin, þar sem hóstinn er orðinn slæmur & mikið hor & slím. Hann hóstaði svo mikið í nótt að hann kastaði upp slími & svaf því ekkert rosalega vel.
En yfir í allt annað, skrapp í góða hirðinn í gær með henni ömmu minni, fann þessa flottu styttu af nöktu pari, þar sem konan situr í fangi mannsins, fannst hún bara flott & kostaði heilar 1200 kr. Sem var nú ekki mikið, því styttan er nokkuð stór. Keypti mér 2 cd líka, pottþétt 43 & Janis Joplin greatest hits... love that cd.
Fór svo líka í rúmfó, fann þar BLEIKT útilegumatarstell, bara flott, inniheldur 4 diska, bolla, glös, skálar,hnífapör & kostaði þetta einar 1490 kr.. læt það líka vera. Mjög sátt.
Svo þarf að þrífa gluggana fyrir sumarið, & splæsti ég í gluggaþvegil, maður verður víst að sjá út með hækkandi sól :)
Enduðum við amma mín þetta á kaffi Mílanó með góðu kaffi & rækjubrauði mmm... alltaf gott að fara á kaffihús :)
Eva komin í sígó, until next time... Luv.. LadyLilja
mánudagur, 14. maí 2007
Sólin skín & fuglarnir syngja..
Reyndar komu foreldrar mínir í heimsókn ásamt bróður & litlum hundi sem ber nafnið YOKO. & er hún bara æðisleg, miklu sætari real life en á mynd.. mm gæti næstum étið hana. Algjört æði, segi nú ekki annað!!
Svo í gær var hent sér í Hagkaup, keypti mér grænt te & hydroxycut Þar sem ég ætla alveg að verða slim í sumar... hehemm.. Svo tók einmitt við rosa fínt afmæli hjá Gabríel þeirra Elsu & Dóra & var hún Elsa mín alveg með rosa kræsingar á borðunum & get ég ekki sagt að ég hafi verið að passa mig mikið þar, en það er nú önnur saga.
Kosningar, pólitík and all that, ekki mitt að ræða en er ekki komin tími á að breyta til, ekki vera svona vanafastur? Breytingar eru bara góðar eða hvað?
Jæja, ætla skella mér á búðarráp með henni ömmu minni :) Þangað til næst..
föstudagur, 11. maí 2007
Austantjaldslöndin hvað!
Tek ekki þátt í þessu meira. Eiríkur Hauksson var bara flottur þarna með flott lag!
Segi ekki meira um það! Takk fyrir pent, eins pent & hægt er.
Hætt að hugsa um þetta núna, farin að hugsa um grillið sem verður hjá Sonju & Ingu í nýja flotta húsinu þeirra, eftir flutningar á miðvikudaginn! Það verður sól, & allavega 10 stiga hiti. Jahá bjartsýnin hvarf ekkert þótt trú mín á Eurovision sé að dvína. Svo ætlum við flotta fólkið að skella okkur á Nasa síðar um kvöldið, & í þetta sinn ÉG MEÐ! & það er strax komin smá tilhlökkun!
Hef þetta blogg ekki lengra að sinni, kallinn á leið á vinnudjamm í kvöld svo ég held ég opni bara hvítvín & lesi ástarsögur while he's away!!!
Luv...Lady Lilja....
þriðjudagur, 8. maí 2007
Er komið sumar eða?
Strákurinn ennþá alveg sprækur sem lækur & hress sem fress, & er ég bara nokkuð jákvæð á framhaldið.. þýðir lítið annað. Greiningarteymið búið að plana fund 15 maí á leikskólanum & fæ ég þá vonandi betri upplýsingar um hvað það sem er verið að ath. með hjá honum. Verð að viðurkenna að í mallanum mínum er smá hnútur.. en þetta getur ekki verið svo mikið alvarlegt.
Nú er það bara eurovision sem ég hugsa um, kemst Eiki Hauks áfram svo við fáum að vera með í aðalkeppninni líka? Ég er nokkuð bjartsýn á það allavega, finnst lagið bara ágætt, svo er hann alltaf flottur hann Eiki... veit ekki hvað það er, en eitthvað er það... kannski leðrið..!
Nú ætla foreldrar mínir & bróðir að festa kaup á hundi, american eitthvað... get aldrei munað rétt nafn á þessari tegund, en prinsessan sem er byrjuð að koma í helgarheimsóknir er algjört krútt.. getið séð myndir af henni á síðunni hjá múttu minni. Bara sæt.
En jæja ætla fara koma mér að gera eitthvað að viti.... hendast í sturtu..
Luv Lady Lilja...
fimmtudagur, 3. maí 2007
Nýtt blogg!!!
En þar sem ég hef ekki bloggað alveg skelfilega lengi, þá er auðvitað eitthvað sem ég ætti að geta sagt ykkur frá. Til dæmis eru foreldrar mínir fluttir langt í burtu frá mér, voða skrítið. Keyptu sér æðislega íbúð vestur í bæ, Granaskjól, alveg við KR heimilið sem er auðvitað alveg gífurlega fallegur staður & myndi ég skoh alveg vilja eiga þessa íbúð. Ekkert lítið kósí. Þau eiga eftir að hafa það rosa gott þarna.
Litli gæinn minn er bara búin að vera hress í 3 vikur, & er þetta bara frábært, allt annað líf skoh. Fór með hann í heyrnamælingapróf & kom allt gott út úr því, eins með málþroskaprófið kom gott út úr því, skildist mér.. skildi þó ekki alveg hvert talmeinafr. var að fara en það kemur allt í ljós þegar það er búið að greina barnið, þar sem leikskóli & talmeinafr. eru á því að eitthvað sé að. Ég segi að hann sé alveg eins & ég var sem barn, þeir ættu þá kannski að byrja greina mig, & úff... nei ég vill ekki sjá niðurstöðuna úr því, látum nægja að greina hann.
Lífið almennt, gengur upp & niður.. & ég hef komist að því að sumt fær maður ALDREI skilið. Það er ýmislegt að veltast um í hausnum á mér þessa daganna.
Jæja kveð í bili, reyni að vera duglegri í þessu bloggi... Luv Lady Lilja