föstudagur, 24. ágúst 2007

Ein spurning!!

Er einhver að lesa? þá verður þessi dálkur gestabók, endilega kvitta, er að gera rannsóknir með áhuga fólks á blogglestri, þætti vænt um ef þið tækjuð þátt :)Með fyrirfram þökk, LadyLilja

fimmtudagur, 23. ágúst 2007

tjekka hvort þetta virki....

You Communicate Like a Man
When you communicate, you like to get to the point.You're not afraid to say what's on your mind - and leave it at that.Talking about your emotions drains you. You rather keep them to yourself.You prefer solving problems to wallowing in your sorrows.



Ef það virkaði þá kom þetta mjög á óvart :) En svona er þetta, allt kemur á óvart....

Tíminn líður hratt

á gervihnattaöld eins & einhver sagði. Strákurinn minn litli já eð-a bara stóri er orðinn 3 ára. I just don't beleve it... 3 heil ár & 4 dögum betur síðan ég lá á fæðingadeild Landsspítalans að koma honum í heiminn... vá maður. & pabbi, hann er orðin 50, & ekki nóg með það, þá er ég Liljan unga að verða 25 ára. Bíddu hvert fór tíminn? Ég spyr, ég meina, ég sat hérna í gær með mágkonu Kittýar vinkonu, sem er aðeins yngri en ég (17) & í sjónvarpinu kemur myndband með Selmu Björns. Lagið þarna Respect your self, & hún segir við mig, díses hvað þetta lag er gamalt, ég var bara 8 eða 9 þegar þetta lag var vinsælt, & þá kom það, ég áttaði mig á að ég var 18 ára þegar þetta lag var vinsælt!!! Mér finnst hún ekkert svo rosalega mikið yngri en ég þegar hún sat hér í gær, en þegar hún sagði þetta, þá vá, OMG ég er ellismellur.
Nei svona í alvörunni, mér fannst ég vera 18 fyrir svona 4 árum ekki meira... Svo er litli bróðir minn bara alls ekki lítill lengur. Hann er 14 ára & miklu stærri en ég... hey hey hey sko!

Já smá sjokk við allt þetta, en life goes on, & það er um að gera að nýta það...

Ég & Eva vinkona að skoða ferðalag þarnæstu helgi, ég er að taka út eitthvað smá flipp núna en við þurfum þess öll einhverntímann á lífsleiðinni :) Á meðan það skaðar engann, er það leyfilegt.

Heyrðu, Mikael fékk ekkert smá æðislega ammælisgjöf frá Guðrúnu vinkonu, hún átti litla prinssessu sama dag... ekkert smá gaman, líka sniðugt þar sem Patrick sonur hennar á ammæli dagin eftir, gott að hafa þetta svona í röð. Svo eru þær mægur, Erica & Guðrún 2 & 3 Janúar. hún kann sko að velja daganna :)
Eins & ég reyndar þar sem pabbi er 19 ág. Mikki minn 20 ág. & múttan mín 21. ág. Sona er þetta allt sneddí.

Barnaammæli næstu helgi & verður mikið stuð, ég er alveg í vandræðum, þekki svo mikið af fólki, komin með 35 með foreldrum, díses, ég verð að skera niður... þetta er nú bara 3 ára afmæli. Þetta er ábyggilega meira en pabbi býður í 50 afmælispartý til sín. Eða næstum því :)

Jæja nóg af afmælispælingum í bili... reyni að vera dugleg að halda þessu við... until next time..
Luv...LadyLilja...Liverpoolgirl ;o)

fimmtudagur, 16. ágúst 2007

hallúú...

Jebbsí pebbsí, haldiði ekki að mín sé komin aftur með tölvu, internet & pakkan. Geggjaða DELL inspiron fartölvu, sit hér nú í latastrákssófa* & blogga í elskunni minni í fyrsta skipti. Mín tölva athugið, mín,mín,mín :) Ekkert lítið ánægð með gripinn.
En nóg um´amorinn minn (tölvuna) út í heyrt & gerst.....

Road trip með Kittý vinkonu, Gaby & Mikka mínum var frá 2-6 ágúst sl. Fyrst var haldið á Ak. til mömmu Kittýar, okkur tókst að leggja af stað loxins kl. 22:00 frá Mosfellssveitinni fögru (þar var seinasta stopp áður en haldið var af stað í langferðina) & vorum við komnar um hálf fjögur þá nótt, krakkarnir létu aðeins hafa fyrir sér, en sofnuðu svo værum blundi meðan við Kittý hlógum okkur máttlausar alla leiðina af vitleysuni í okkur... ég meina hvað er málið með skiltin sem stendur á "munið eftir eftirlitsmyndavélunum", alltaf þurftum við að stoppa & púðra nefið, setja gloss & maskara fyrir hverja vél & smæla svo fallega framan í vélina... hey hvar eru myndirnar, við pósuðum heví :o/

Föstudagurinn var svo afslöppun út af fyrir sig, var tekin Bowen tækni tíma, & díses, mín bara fékk netta afslöppun & sveif. Svo þurfti að stússast, meðan ég huxaði að ég þyrfti blað til að skrifa allt niður, sagði Kittý það & viti menn, kemur Svandís (mamma Kittýar) svífandi með blaðið... fyndið :oD Svo var farið á glerártorg & að sjálfsögðu fékk mér kaffi þar mmm.... Kl: 20:30 var stefnan tekin austur á Egilsstaði (Fellabæ) & þar stoppuðum við fram á mánudag. Komnar rúmlega eitt þangað, & áttum við ágætis kvöldstund með vini Kittýar sem var svo góður að veita okkur gistingu. Laugardagurinn fór bara í að slappa af & chilla eins & sagt er.

Sunnudagur: Ég fékk taugaáfall, hélt ég myndi ekki lifa lengur..án gríns. Fórum í Bónus & kautum góðan grillmat,kók,pez & fleira... komum heim, & á 1 mínútu hvarf Mikael Orri... þar kom taugaáfallið, díses kræst ég bara trúi ekki enn að þetta hafi gerst fyrir mig & mitt barn. Sem betur fer fannst hann ómeiddur eftir rúman klukkutíma, en aldrei hef ég grenjað svona móðursjúkslega áður, & fólk að segja mér að hætta grenja..Fu*k u, það segir manni sko enginn að bregðast öðruvísi við (sorry ég verð svo reið þegar ég hugsa um þetta brýst algjörlega fram).

Björgunarsveit kölluð út, lögregla, allir bæjarbúar leituðu, & var það yndisleg kona að nafni Eva sem fann drenginn minn. Fæ henni aldrei þakkað nægilega.
Fórum svo heim á mánudagskvöldi, komnar heim kl. 6 á þriðjudagsmorgun, þar sem við keyrðum straigt, nema smá stopp á seyðisfirði (alveg í leiðinni skoh :D) þar sem við borðuðum & skoðuðum bæjarbúa & venjulegu húsin... stutt stopp á akureyri líka að koma Gaby beibí til ömmu sinnar.

Annars bara alles gúddís af mér... blogga meira síðar þar sem þetta var ágætisbyrjun í nýju tölvunni.

*latastrákasófi= stolið orð frá mömmu.... ;o)

Luv...LadyLilja....