sunnudagur, 30. september 2007

Skál!!

You Are a a Margarita Woman

You live most of your life in "Margaritaville", and everyone who knows you knows it.
You can party with the best of them - and you're really up for anything!
You're the type who's most likely to do body shots or enter a bikini contest.
You prefer to date a man as lively as you are... he has to keep up!

laugardagur, 29. september 2007

Já ég er sko ekki verst af öllum greinilega...

það myndi vera Kitty vinkona. Við eigum ekki að hafa aðgang af eldfærum, ættum ekki að fá að kaupa eldfæri einu sinni því einn daginn fuðrar allt upp!!!! Sko málið er að nú var Kittý að kveikja á kertum, & þið getið aldrei hvað. Fram hjá gengur hún Nína (kisan hennar) & allt í einu er skottið á kettinum í ljósum logum. Ég meina það sko, þetta var ekki þráður Kristjana, heldur skott.
Sem betur fer var ég ekki vitni af þessu því þá hefði ég verið meðsek um illa meðferð á köttum, & ég er sko dýravinur, tek ekki þátt í þessari illu meðferð sem þarna fer fram.
P.s Kittý, ég er búin að hringja í kattarvinafélagið, þeir eru á leiðinni!!! Ég lofa heimsækja þig elskan :)

laugardagur, 15. september 2007

Hverjum nema mér tekst þetta?

Liljan ákvað að gera pínu kósí, kveikja á kertum & svona eins & hún á til að gera. Kertasýkin sem ég erfði beint frá móður minni að gera vart við sig...hehe, anyways straight to the point, ég er að kveikja á kertunum á kertaspeglinum mínum sem er ekki frásögu færandi nema það vill ekki kvikna á einu kertinu.
Ég auðvitað gefst ekkert upp, ég meina how easy is to light a one candle? Nema allt í gýs upp þessi líka svakalega sviðalykt... ég lít í kringum mig & leita & leita, & þá sé ég það.... þú sem ert að lesa þér dettur aldrei í hug hvaðan lyktin kom, því ég kveikti ekki. (hvorki á perunni né á kertinu sko) Þetta var þumalputtanöglin mín fína, að BRÁÐNA!
Jebbs varð að deila þessu....
Luv...LadyLiljan...litla

mánudagur, 10. september 2007

Partýdýrið

mætt aftur & ákvað að henda inn smá bloggi. Á laugardagskvöldið var svaka partý í Skjólinu í skjóli myrkurs :) Pabbi minn hélt upp á 50. afmælið sitt & ákváðum við familyan að senda kallinn á Anfield, verður nú að sjá aðalliðið spila,svona í tilefni hálfrar aldrar ammæli. & ég held að það þurfi ekkert að nefna það hvernig hann tók í það :)
Var alveg rosalega gaman hjá okkur þarna & söng Liljan hátt & mikið,eins & ég á stundum til. Alltaf gaman hjá þessari fjölskyldu því mikil er músikinn í blóðinu.

Á morgun á ég kisu, ætla láta á það reyna & sjá hvernig gengur með strákinn. Hann fær nafnið Lúsífer... held ég allavega. Set mynd af honum þegar ég man ;o)

Annars allt gott að frétta, nenni ekki að pikka meira þar sem sonur minn helti smá kóki yfir Amorinn minn (tölvan var nefnd það muniði) & límast sumir takkarnir niður alltaf, það er að segja bil-takkinn & örvarnar...óþolandi. Hlýt að geta tekið þá upp & þrifið klístrið.

Allavega pa&ma takk fyrir æðislega veislu & geeeeeggjaðann mat..mmm, ég kem í mat í vikunni, díll?

Luv..LadyLilja...litla...