laugardagur, 29. desember 2007

Já það er andvaka hér á bæ...

óveður úti & Mikkinn minn vill ekki sofa. Þannig að ég fæ ekki heldur að sofa :) Er búin að reyna allar leiðir á barnið, söngin,söguna, nú síðast flóaða mjólk, and nothing, nothing is working HJÁLP!! Búin með öll barnalög í heimi. Þetta enar með að ég bara tek barnið fram, er alveg gjörsamlega búin að gefast upp.
Núna tók ég til þess að spila smá tónlist fyrir hann..er kannski að virka..dont know. Mig langar allavega að sofa smá takk.

Birgitta vinkona kom í kvöld, mjög gaman að sjá hana, þótt hún hafi ekki verið áfram yfir nóttina eins & áætlað var :) Ætluðum að hafa voða kózy saman, en eitthvað tosaði karlgreyið í hana..hehe, bau' skvízunni á hótel bara. Voða rómó ;o)

Já svona er þetta víst, ég fór til hennar Emilíu minnar í gær & hún er bara komin með bumbu stelpan, voða myndó svona með bumbu :) Komin tími til að ég sjá hana með bumbuna, hún beið eftir Mikka með mér :) Spilaði við mig öll kvöld nánast meðan ég var á steypinum:) Já sko Mían mín bjargaði mér vel þetta sumar :) Krummi hennar sem er stóri dani er bara yndilegasti hundur ever. Vá hvað ég fell fyrir þessum voffa :)

Amorinn minn ætlar að öllum líkindum að flytja til hennar Guðrúnar ef Mikkinn minn lagast ekki. Samt er hann orðin góður núna, er farin að halda að þetta sé bara rykið ef það safnast saman. Verð að losna við þennan tau sófa & reyna kaupa mér leðursófa því tauið dregur svo mikið ryk í sig. Á samt ekki peninga fyrir því akkúrat núna, svo ef einhver out there veit um annaðhvort ódýran eða gefins nettan sófa (sem kemst inn í stofuna mína) endileg hafa samband..KONA Í NEYÐ!!

Anyways,löngu komin háttatími, gaurinn minn yndislegi sofnaði lox, ætla leggja mig örlítið með honum :)

Adios, LoveLadyLiljanLitla;o)

þriðjudagur, 25. desember 2007

Annar í jólum...




& ég er farin að geta hreyft mig eftir ofátið..hehe. Afhverju er ég vakandi? Alltaf sama spurningin...ræðiði þetta við mömmu hún er næturgalinn :) Anyways, ég hef alveg átt yndileg jól, vorum hjá foreldrum Baldurs á aðfangadag, ákváðum að vera allavega saman um jólin með litla gaur ;) Sem er ánægjulegt. Fékk þar yndislegan hamborgarhrygg & meðlæti & frábæra ístertu í eftirrétt. Var svo núna á jóladag hjá múttu & co í skjólinu & mmmmmm hangikjetið klikkar aldrei þar, alveg geggjað. Matur mmm, það eru nú bara jól einu sinni á ári hehe. Jólasúpan sem ég tók með heim á aðfangadag eftir kaffið hjá mömmu & co verður svo borðuð á morgun, ég gleymdi henni í morgun, hvað er að manni sko, þetta á að vera jóladagsmorgunsúpa!!!
Anyways, prinsinn var veikur þessi jól eins & hin á undann en vaknaði samt kl 10 & fór þá í gír & reif upp alla pakkana sína & vá hvað hann fékk mikið, föt, stóran bangsímonbangsa til að kúra hjá. Tommi togvagn & aðra lestarbraut. Æðislegt. Ég fékk sitthvað líka... svo sem fíl úr svona tré & gíraffa 2 úr tré, leðurhanska, sæng & kodda ( á ábyggilega bara eftir að sofa fullt & hellings vel. Þráðlausan heimasíma, ilmvatn & shower gel viktoria secret cat delux handklæði, 2 litla leðurgrímur, 2 geisladiska, Katie Miloa & Pál Óskar 2 kertastjaka í stíl frá Sonju & Ingu.. & já komið held ég bara.
Búin að vera frábærir dagar & takk allir æðislega vel fyrir mig. KOSS á ALLA.

En jæja ég held að ég sé bara orðlaus núna orðin soldið tóm svona seint..hehe :)
Meira seinna :D

Lov LadyLiljanLitla...

föstudagur, 21. desember 2007

Jey the x-mas is coming

Já hún Kittý mín kom & hellti smá jólaenglaryki yfir mig & þetta er allt að koma :) Fórum á langan rúnt í dag, til hveró, í bæinn, TR, Efling, TR, Efing, sýslumaður í Kóp, & ýmislegt fleira en enduðum á endanum heima hjá mér & snérum stofunni minni við & jú nó vott, hún er miklu flottari, heví fínt loxins hjá mér & jólatréið komið upp & miklu meira jóladót!!!
Svo nú sit ég hér með jólastelpuhúfuna mína & blogga..hehe.. jebb alvöru jólafýlingur :)
Langar samt að taka fram þótt síðasta blogg hafi hljómað neikvætt, þá ættu þeir að vita sem þekkja litlu Liljuna að þetta var nú allt saman bara kaldhæðið grín af sjálfri mér.

En já, ekki hef ég neitt rosalega mikið að segja meira í bili...

Er bara að reyna finna mér eitthvað að glápa á dvd... finn eitthvað á endanum, svínasúpuna eða eitthvað bull :)

Lovs.. LadyLiljanLitla

fimmtudagur, 20. desember 2007

NOT my best last days!!!

Það er sko alveg á hreinu arg!!! Ok svona til að byrja á óhöppum síðustu daga, þá fauk loftnetið af húsinu & nánast allt sjónvarpið er úti (notabene fékk jólagjöf frá stöð 2 fjölvarpið, sá það í 2 daga svo var allt úti & er enn) Búin að vera ansi tóm budda síðustu daga (æææææææ aumingja ég) & átti ég bara smá leyfar af kattasand, kötturinn náttúrulega ekki nógu sáttur en ég komst ekki að því fyrr en í gær!!!! Var að flokka óhreina þvottinn þvottadagur í dag, en nei, þessi mikla megna stækja verður alltaf sterkari & sterkari, kem neðar í balann & loðinn föt!!! JEBB auðvitað mótmælti kizi & meig í óhreina þvottinn...auðvitað betra en hreina en samt ekki!!!! OOOOOOJJJJJJJJJJJ. Þar með fuku nokkur handklæði, nokkrar tuskur, sokkar, smekkur & eitthvað. Bara gat ekki huxað mér að reyna þvo þetta.
Var að reyna bjarga nokkrum peysum af mikka með að skola úr & hreinsa í gær & er með þetta í baðinu, syngjandi minn fagra laundry söng & svona voða gaman fæ þá helv... sturtuhausinn mð sjóðandi vatni beint í andlitið (snérist við í baðinu sko) ég rennandi blaut með myglaðan þvott & Mikki minn ekki alveg að samþykkja að fara sofa svo ég var hér hlaupandi á eftir honum til að setja hann aftur upp í rúm. & ég er ekki búin, ó nei, ég er líka með massíva tannpínu & ég get sko sagt ykkur að það er ekki til að bæta skapið.
Áhugavert!!! Heyrðu svo ætlaði ég að blogga um allar hamfarir mínar í gær en nei..netið & heimasíminn dáið!! Ég get svo svarið það þá staðnaði ég í aldri.. ég hélt að nú væru dagar mínar taldir því ég var við það að fá alvarlegt taugaáfall. En þetta bjargaðist nú með því að skipta um símakló & ég fór að dempast aftur niður.
En nú er bara svo komið að ég bara verð að láta kiza.. tími því ekki langar það ekki, vill það ekki, en ég held ég þurfi þess bara!!! Sjáum hvað setur.

Jæja jólin að koma & ég á eftir: að kaupa jólagjafir, klára skreyta, gera aðventukrans;) senda jólakort(líkurnar að það gerist), þrífa, & já... held að allt hitt sé búið.

En jæja er komin með sinaskeiðabólgu.. ætla hvíla hendurnar & mig... svo tannpínan minnki.
Adios...LadyLiljanLitla

fimmtudagur, 13. desember 2007

Hvað er að mér?


Ahverju er ég vakandi? Afhverju er ég ekki í draumheimnum svífandi að láta mig dreyma um allt það fallega & góða sem á eftir að gerast í mínu lífi. Ekki það að ég sé óhamingjusöm í dag, ó nei. Átti góðan gærdag. Líka í dagdag :) & ekki á ég von á að morgundagurinn verði slæmur... stjörnuspáin segir það :) Ég segi það! Fór til mömmu & pabba í dag, pabbi eldaði kjöthring mmm mamma bjó til heimatilbúna karteflumús eins & hún gerist best, við Lonni sys hjálpuðumst að við að leggja á borð, skera niður tómata & gúrkur & pabbi bræddi smjör. Örn Aron fór út á meðan í eitthvað snjóboltakast, með Ámma vini sínum.
Svo snæddum við yndislegan mat.. þetta er eitt að því besta, eins & þetta er óhollt.. borða nóg af gúrkum & tómötum með til að bæta sér upp óhollustuna.
Spurði mömmu hvort henni þætti skemmtilegra að þría á kvöldin eða daginn..jújú kvöldin auðvitað, ég hlaut að hafa þetta frá henni. Ég nenni engu hér heima fyrr en á kvöldin. En ef ég er annars staðar, þá gæti ég ábyggilega gert þetta kl 6. Eftir góðan kaffibolla.
Afhverju er alltaf skemmtilegra að þrífa annars staðar en heima hjá sér? éG MEINA ÉG ER BÚIN AÐ HRINGJA Í Kittý, fékk loxins að taka til með henni, búin að bjóða Sonju þetta, býð eftir símtali, ég meina mér finnst þetta ótrúlega skemmtilegt nefnilega. Er ég skrítin? Já ég get verið það, er ánægð með það. Vantar aðstoð við þrifin..call me hehehhehe ;o) Bara einn kaffibolli & ég fer í gírinn.

Ég á afmæli í dag ég á afmæli í dag ég á afmæli í daaaaaag ég á afmæli í dag. Vei... ásamt formlega afmæli kl hálf níu annað kvöld, þá fæddist ég... í óveðri minnir mig að mamma hafi sagt...
Mamma leiðréttir ef ég segi rangt frá. Verð á jólatónleikum, Vox Femene, Gospelsystra, & Stúlknakórs Reykjavíkur þá. KvíKví er söngfuglinn þar ásamt, fleiri sætum konum & stelpum.

Afmælið mitt síðustu helgi... mæting var á þennan veg, Elsa (gaf mér skó & engil) Kittý, Vignir & Ósk ( Kittý er gjöf, Vignir var slaufan) Lonni & Baldur ( Jólabjór í ógisslega sætum poka, ætla svo að taka þátt í að gefa mér föt ásamt allri fjölskyldunni, ég er svo illa til höfð ;D) Valur kom með 12hvítvínsglös & hvítvínsflösku en alltaf bættist við í pakkan & á endanum var pakkningin utan af kassanum orðin af mynd, pallíettuteygjan sem hélt flöskunni við pakkan orðið belti, & skrautið á flöskunni orðið hárskraut. hehehhe... Sonja kom með bleika leðurhanska & dökkbleikar rósir sem lifa enn.. ekkert smá sætar, hef heldur ekki fengið blómvönd síðan á konudaginn 2004... æi hvað það lifir :) Svo komu Inga & Gunna með Rauðvín, Svenni kom með sjálfan sig & nammi í poka, saltlakkrís gaf mér hann svona í uppbót. Eva kom með kerti fyrir kertafríkið & ógisslega töff poka utan um :) Takk Takk Takk! Eitt skemmtilegasta afmæli sem ég hef átt þótt flestir hafi farið frekar snemma...en við hin skemmtum okkur vel aðeins lengur. Ég hef reyndar ekki haldið upp á afmælið mitt síðan ég varð 20, & að fá MÍNA vini loxins alla saman var æði. Ég er algert afmælisbarn, elska eiga afmæli :)

Jæja ætla hendast í háttinn óveðrið er byrjað & ég ætla hjúfra mig upp að stráknum mínum sætasta...
LovsLadyLilja

þriðjudagur, 11. desember 2007

stutt blogg

Já sumir virðast aldrei breytast, never ever. En svona er þetta bara. Maður lærir að sætta sig við það.

Afmælið heppnaðist vel þótt ég hefði nú vilja sjá hina sem ég bauð líka :o) En þið sem komuð, takk fyrir mig, það að fólk komi er nr 123 :) Ætla segja betur frá þessu seinna, núna akkúrat er ég að hugsa um að... læra sætta mig við það sem ég get fengið & það sem ég get ekki fengið.

Sem er ýmislegt.. lífið er yndislegt en samt svo... erfitt


Lady Lilja

þriðjudagur, 4. desember 2007

Ljóðin mín :)

Bjóst ekki við að þora þessu en langar virkilega að fá ykkar dóma.
I have 2 be strong

I have 2 proof them wrong

Wan't 2 show them that I

will not lay down and cry


Life can be tuff

Like I don't know all that stuff

I'm living in the same world and u

I don't need people tell me what 2 do.


I just need u as friend

I need u 2 understand

I need 2 stand on my own feet

I need this life 2 b complete.


When this has been done

there will b new girl in the "sun"

Better and stronger than ever

Because that will b this time or never.



Libby 19 júlí 2007


Samt er eitthvað svo skrítið...

Ég hef fundið svo mikið
margt sem ég ekki skil
Mér hefur þótt hjarta mitt svikið
margt sem ég alls ekki vil

Það brýst svo mikið í mér
sem þó engum er tjáð
sem ókunnugur, í mínum augum sér
sem sýnir að alltaf var ég þér háð.

*Samt er alltaf svo skrítið
er ég var með þér
að fann ég svo lítið
sem eftir var, nú er leið mín lox bein.

Þú sýndir mér ást þína
& þónokkuð oft leið mér vel
þrátt fyrir, fann ég óvirðingu skína
því ég ekki ást mína sel


Ég veit stundum ekki lengur
hvað ég geri rétt eða rangt
Hvað allt hérna út á gengur
Eða hvað líf mitt er langt.

*Samt er alltaf svo skrítið...

Hver er ég, ég spyr
á ég bara bíða & sjá
á ég að bíða eftir að opnist mér dyr
á ég eftir að finna ástarþrá?

*Samt er alltaf svo skrítið...

Libby 2007


No more pain
'cause now I'm going insain.
It's killing me, it's hurting me,
there is nothing, nothing I see.

Kiss me goodbye,
I am crying 'cause this guy
is killing me alife,
I am not his future wife.

Take it away, far away,
'cause there is nothing left 2 say.
I have hurt him 2much,
I can't even feel his tuch.

Love has gone from us,
leave and take next "bus".
Somone will take you,
somone will take away your blue.

H0f:LadyLilja

Jebb stelpan á það til að semja ljóð eða hvað þetta kallast nú...

Koma svo kommenta, þið sem eruð ekki með blogger account, þið bara hakið við í anynoumus & skrifið nöfnin ykkar undir kommentið...það geta ALLIR sem vilja kommentað ;o) Takk samt fyrir að lesa.. Lovs...

Smá brandari í lokinn..

Lárus & Lárus

Heyrðu Lárus.
Já Lalli!
Ég fæ bara vatn í munninn Lárus.
Afhverju Lalli?
Nú, af því ég er að drekka vatn. hahahahahhahaah

Afhverju geta blindir ekki verið hommar?






Nú þeir sjá ekki rassgat..again hahahahhahahahahahh


Afmælið mitt er 7dec :) endilega hafið samband ef þið vitið ekki hvar & kl. hvað :)

mánudagur, 3. desember 2007

One of these days

Mánudagur... eða bara einn af þessum leiðinlegu vitiði... Þegar maður heldur að allt sé upp, þá tekur það snögglega u beygju & hrapar. Hvað gerir maður þá?
Hvernig fær maður svör við spurningum sem er svo ofsalega erfitt að koma frá sér? Spurningar sem enginn maður/kona ætti í raun að þurfa spyrja, en þarf samt svo að vita. Sumt fólk er svo tvírætt, manni þykir svo vænt um það en er svo hrikalega óviss hvort það sé í raun gagnkvæmt, líður eins & það sé svona "já ok, ég get alveg eins talað við þig, en í rauninni væri mér sama þótt þú færir"

Væli væl sko!!!!!! Ætla hætta því farin að ryksuga & skúra. Áður en Mikki minn hóstar öllum líffærum upp.

sunnudagur, 2. desember 2007

Hvað segja stafirnir í nafninu þínu um þig???

Hver hefur ekki gaman að þessu? Er nokkuð viss um að það munu allir ath. stafina í nafninu sínu þótt þeir pósti þessu ekki líka á sitt blogg, en ég á ekki höfundarréttinn svo endilega..copy/paste ið & skellið á bloggið ykkar ;o) Sá þetta reyndar á ensku annars staðar, en betra er að fá alla Íslenzku stafina líka.

A: Heitur/Heit
Á: góð/ur í rúminu
B: Magnaður kyssari
C: ágætur kyssari
D: skemmtilegur deitari
Ð: er nörd á góðan hátt
E: getur lamið þig í klessu
É: með flott brjóst/sixpack
F: brjálað fólk elskar þig
G: elskar að brosa og hlæja
H: fáránlega heitur/heit
I: elskar að gilla
Í: er húmoristi
j: er mjög kósý
K: æðisgengin/nn
L: mjög góður kyssari
M: hefur fallegustu augun
N: auðvelt að verða ástfangin af
O: hefur einn fallegasta persónuleika sem til er
Ó: er kaldhæðin/nn
P: vinsæl/ll hjá allskonar fólki
Q: dýravinur
R: er með flottan rass
S: fær fólk til að hlæja
T: bros sem að bræðir mann
U: er mjög kynþokkafull/ur
Ú: er hnakki/hnakkamella
V : er ekki fordómafull/ur
Y: hefur fallegar hendur
Þ: er ástríðufull/ur
Æ: finnst aldur afstæður
Ö: er hræðilegur

L: mjög góður kyssari(Á erfitt með að meta það sjálf)
I: elskar að gilla(elskar...?)
L: mjög góður kyssari(Ok,ok,er allavega ekki neitað)
j: er mjög kósý(auðvitað)
A: Heitur/Heit(Heitust sko ;o) )

B: Magnaður kyssari(Ég get líklegast ekki sagt annað en greinilega marh)
R: er með flottan rass ( Þann allra flottasta sko)
Y: hefur fallegar hendur (litlu sýnishornin, mjög fallegar :D)
N: auðvelt að verða ástfangin af (En gaman)
D: skemmtilegur deitari (bara alltaf skemmtileg vona ég)
Í: er húmoristi(ég á mín moment, annars eru alls ekki allir sem skilja mig)
S: fær fólk til að hlæja (ætli það sé ekki bara vitleysan í mér??)

Svo er annað sem ég þarf að segja: Lonni, ég fann annað orð en "Íslenzka" með Z, skvíz er skrifað með Z heheh... ég bara varð að finna annað :)

Lovs LadyLilja

laugardagur, 1. desember 2007

Æðisleg helgi..

Föstudagur: Kíkti á Kittý & hennar gengi... merkilega skemmtileg stemming á þeim alltaf & skemmtum við okkur konunglega saman örlítið frameftir..hehe :) Hlustuðuðum á tónlist & held ég að ég hafi sjaldan séð jafn margar tölvur tengdar við sama ráder á einu heimili.. dæses sko ekki díses heldur var það bara dæses. Já þarna sátu a.m.k. 3 í tölvunum sínum á sama tíma...svo var skipst á. Mikið spjallað, mikið hlegið, svolítið sungið en ekkert grátið enda engin þörf á því.

Laugardagur: Byrjaði nú bara á því að vakna með mínum yndislega syni, gefa honum að borða, & þess háttar sem hann vill láta gera fyrir sig, horfðum á barnatímann & svona spennandi :) Svo um 16:00 kom pabbi minn að sækja okkur keyrði mig á opna húsið hennar mömmu, þar sem hún var með rjúkandi súkkulaði & rjóma ásamt ostum, smákökum & svona gúmmilaði...mmmm. þar sem þetta var opið hús fyrir konur þá var pabbi með mikka á meðan við skoðuðum Miranda's vörur & svona nice.
Kvöldið var svo rólegt til svona miðnættis, þá kom uppáhaldsbró & passaði fyrir mig svo ég kæmist nú í 40 afmæli Ragga hennar Sonju minnar, orðinn stór strákurinn hennar :) Mikið gaman & enn meira fjör & skemmti ég mér bara þónokkuð vel. Verð að nefna snilldarlegan bol sem hún Sonja sæta var í.. með áletruninni "It suck's to be you" ég ætti líka svona bol hefði ég komist á Tiesto með hópnum!!! Voru nefnilega öll alveg eins. Orðin hefð að vera alltaf með þema þegar farið er á svona technopartý.

Já nú er kominn sunnudagsmorgunn & ég er að huxa um að leggja mig þótt ekki verði nema 4 tímar :S Já já nú verða örugglega einhverjir sem segja "Lilja þú verður að passa þig" já ég veit það allt saman alveg að verða stór þótt sentimetrarnir verði ekki fleiri sama hvað árin líða.

Anyways, Sonja mín, Raggi & já auðvitað Guðni, takk fyrir mig, þið standið ykkur allataf vel með boðin, & Kittý mín, Kristín, Vignir & Grímur takk líka fyrir að bjóða mér. Ég mun launa ykkur öllum & býð ykkur til mín næstu helgi þar sem ég ætla halda upp á 25 árin viku fyrr. Ég get bara ekkert gert af því að hafa fæðst í miðjum prófum Sonja mín, því miður... enn ég kann samt ágætlega við minn 14 dec ;o)

KvíKví, súkkulaðið var æðislegt & leyfði ég mér að drekka vel af því.. very nice very nice :) Lofa að fara halda kynningu... eftir áramót, þá kemst Sonja líka því þá er hún búin í prófum hihihi :)

LadyLiljaKveður enn & aftur aftur & enn...Lovs