fimmtudagur, 31. janúar 2008

Æi, get ekki sofið

& ætla deila einhverju með ykkur. Hvað það verður kemur í ljós, þ.e.a.s. ef ég kem einhverju merkilegu á skjáinn. Málið er að þetta er önnur nóttin sem ég sef illa.
En ég er að fara í neglur á morgun, finally, & ég huxa að ég ræði þetta vandamál við sálfræðinginn í leiðinni. Það gæti hjálpað.
Hrefna kom hér aðeins í gærdag & klippti á mig topp. Svona af því ég vil vera á toppnum þar sem ég sit hér & drekk bergtopp. Toppiði það ha!
Ég nefnilega heyrði sögu af konu sem lét klippa á sig topp & var svo spurð um skilríki í ríkinu. Ekki varð hún ósátt með það. Þetta er einmitt sama kona & varð fyrir barðinu á litlum kettling þegar hún var að reyna sofa fegrunarblundinn sinn, heyrði að saklausi kettlingurinn hefði bitið aðeins í hana...hahahah, ég held samt hún hafi fyrirgefið dýrinu.
Tók smá rúnt með Kittý í gær & við eins & við erum, tókum smá söngleik saman & ég er ekki frá því að þetta hafi haft góð áhrif á sálina. Ekki hans Jóns míns samt. Enda þekki ég ekkert þennan Jón.

Nú er hún Maríanna mín að koma til landsins, við erum pennavinkonur síðan í gamla daga, & ég hef bara ekki hitt hana síðan 2002 held ég. Það er svo merkilegt, maður ætlar einhvernveginn alltaf að hittast í þessum heimsóknum hennar heim, en alltaf er maður svooo svakalega busy, að það er auðveldara að hitta á forsetann. En þetta er þetta tíbýska íslenzka dæmi.. allir uppteknir..við ekki neitt. Já eða næstum. Anyways nú skal gert betur, & ég ætla hitta hana. Svo hér færðu þetta staðfest svart á hvítu elzkan. Þar sem þú ert svo dugleg að lesa & svona, þá náði ég ekki að skrifa númerið þitt niður, slökknaði á tölvunni :S Svo hringdu í mig;o)

En nú ætla ég að leggja mig, ég hef ekki nógu mörg orð til að segja frá öllu núna. Þau eru sofandi. Samt fullt að segja frá. Annars held ég að ég fái mér dagbók & skrifa niður hvað ég er að gera þá & þá stundina, því ég er nánast búin að gleyma öllu á 01.

En svona eina væmna setningu í lokin, takk takk fyrir stuðningin stelpur (Kittý, Sonja, Inga, Hrefna, Emilía & Eva) Gleymi vonandi engri, það er ómetanlegt að eiga vinkonur sem ykkur, alltaf gottað fá smá pepp öpp!!

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

til þess erum við yndið mitt :) ást og kossar:)

Nafnlaus sagði...

Hæ skvís æi það er ömurlegt að geta ekki sofið kannast alveg við það en vonandi hefuru það gott ég skil samt ekki með stuðninginn og það enda skiptir ekki máli:) en verðum í bandi:)

Kv Tóta Old Friend;)