miðvikudagur, 30. janúar 2008

Ohhh þetta var bara draumur :D

Ég vaknaði í "morgun" & ætlaði að deila svo skemmtilegum hlutum með ykkur en áttaði mig fljótlega á því að þetta var bara draumur! Ég sem hélt að líf mitt væri orðið svo skemmtilegt, & það versta er að ég get ekki einu sinni deilt draumnum, en eitt er víst að það var alveg ótrúlega gaman hjá mér. Svaka partý!!
En ég bæti sjálfri mér það upp með að mæta í hið árlega afmælispartý Sonju & Guðna þann 9 feb. Kannski var draumurinn bara fyrirboði um hvað það verður gaman í ammælinu :) Segjum það allavega í bili.
Anyways, Lonni sys komst á fertugsaldurinn í gær já eða næstum allavega varð þrítug skvízan. Henni finnst hún ekki vera þrítug, ég get svo sem skilið það en það besta við að hún varð þrítug var það að ég er orðin ung aftur, tuttugu & fimm... piff, það er ekki neitt.
Var okkur systrum & börnum okkar boðið í mat hjá foreldrum vor í gær í tilefni 1/3 úr hálfrar aldar afmæli systur minnar (er þetta ekki rétt reiknað?) snæddum þar buff með spæleggi & papriku & sveppum. Alveg rosalega gott, en svo var það rúsínan í pylsu endanum, eftirrétturinn, súkkulaðiostakaka "ala kvíkví" beint úr Krónunni :) Þessi kaka er syndsamlega góð eins & ein vinkona mín hafði á orði eitt sinn. Meira segja hún Yoko okkar var ekki lengi að stökkva upp á stól & fá sér smakk hihi.
Þar sem hún litla yndislega frænka mín hafði fengið sér "keem" í hárið í fyrradag, hálf stk penaten dolla (mæli ekki með þessu í hár),varð auðvitað að halda áfram að reyna þvo þetta úr barninu,græddu þau frændsystkinin baðferð saman við mikla gleði. Held bara að ég þurfi að fá Þórunni lánaða reglulega þar sem Mikael minn neitar að fara í bað, nema þegar Gommelían okkar er með ;o)
Já það er gaman af þessu.

Jæja,jæja, Evan mín kíkti við í gær í hádeginu & það bara má ekki líða svona langt á milli hjá okkur að hittast, það var svo mikið búið að gerast að hún var næstum því orðin gift bara...hihi.
Hittumst svo aftur í gærkvöldi & fórum í "fatabúð Elsu" sem er mjög góð búð á sanngjörnu verði, þar með keypti ég mér sjónvarpsskáp (selur líka húsgögn) bol (bleikan) gallabuxur & gallapils. Allt þetta 4000, þetta er ónotað tek það fram :) Kaupóð vinkona :)

Ég er orðinn fíkill þessa dagana í grænt te & drekk hátt í 10 bolla á dag... betra en allt kaffið sem maður var vanur að láta ofan í sig. Tók svo heilar 20 mín á hjólinu í gær *klappábakiðmitt* & verður þetta vonandi fastur liður daglega. Var reyndar búin að vera vigta mig reglulega hjá mömmu já síðan bara alltaf (nota auðvitað alltaf sömu vigt) & steig svo á hana í gær, búin að vera lítill matdagur bara rosa dugleg í teinu, en hvað, það var komið eitt auka kg. síðan síðast. Halló, hvað er að gerast?
Skilðaekki.

Anyways er að fara hitta lækninn minn....

Untill next time...LiljanLitla

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ég verð á landinu næstu 25 daga eða frá og með laugardeginum :-) endilega hafðu samband við mig. kv Penna vinkonan í ameríku.

Nafnlaus sagði...

Mikið verður gaman að sjá þig sæta. Var einmitt að skoða svo skemmtilegar myndir af okkur síðan.... long time ago:)
Liljan