þriðjudagur, 12. febrúar 2008

hvað gerðist

er bloggið mitt ónýtt? Ég sé ekki tenglana lengur & bara ekki neitt. Það er orðið allt öðruvísi en það á að vera :o( Skil þetta ekki... ætla ath. þetta annars gæti þetta verið sign um að þetta sé komið LJÓMANDI gott af bloggi frá mér & ég eigi að snúa mér að öðru.. who knows.
Svo ef þsð sést ekki meira af skrifum frá mér, þá vitiði afhverju :D hehe.

Verð samt að segja að afmælið síðastliðna helgi var frábært & alveg LJÓMANDI skemmtilegt. Já það er allt svo ljómandi þessa daganna... allavega þegar maður talar við Sonju. Fullt af skemmtilegu fólki þar á ferðinni, þó Lára & Sonja hafi nú alveg svikið alla um magadansatriðið. Ég var svo viss um að við fengjum smá kennslu þetta kvöldið.
Reyndar hafa Sonja já & Lauga auðvitað alveg merkilega gaman að því að stríða mér & reyna oft að nota sálfræðina á mig til þess að láta mig viðurkenna einhverja hluti sem ég hef bara alls ekki gert af mér..hmm skil þetta ekki, hlýt að vera skemmtilegt skotmark. Já þessir sálfræðingar þeir eru hættulegir & þá sérstaklega nemarnir. Mæli með því að þið passið ykkur. En ég læt þær ekki buga mig alveg, that's 4 sure.
Við tókum okkur nokkur saman & gáfum Sonju 4 rauðvínsglös, 2 skotglös & upptakkara sem Anný valdi fyrir hönd okkar hinna sem vorum alveg blank á hugmyndir. & Guðni fékk gjafabréf í Next svo hann geti nú farið & keypt sér jakka sem honum hefur víst langað í lengi. Bjargaði Anný þessu líka þar sem hún kemur stundum við í Next.
Like I said.. bara gaman get ekki rifjað upp allt því það er alltaf svo gaman hjá okkur. Takk fyrir gott partý... & Sonja nú bara verður þú að bjóða okkur í partý & co.

Vona nú að bloggið lagist hjá mér annars eru þetta lokin.. allavega hérna :)

Kveð kát & hress... LadyLiljanLitla

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

heyrðu skutla síminn hjá mér er 8687804 endilega hringdu bara í mig :-) síminn þinn er nefnilega á blaðinu í ameríku, og ég held bara að hann sé í sólbaði.