hefur ákveðið að leyfa okkur að njóta návistar sinnar & lætur vel í sér heyra. Ég get svo svarið fyrir það, ég man bara ekki eftir öðru eins. Björgunarsveitin & lögreglan út um allt í útköllum, fólk beðið um að vera innandyra & ég veit ekki meir... ég ætla bara rétt að vona að það verði orðið betra á morgun. Þegar prinsessuafmælið árlega fer fram, annars verðum við bara panta björunarsveitarbílinn í stað leigubíls, því afmælið verður sama hvað Stormur ætlar sér.
Annars er nú búið að lægja núna síðan ég byrjaði að blogga, tók smá símapásu :D Spjallaði við sys í nákvæmar 54 mín, hún er komin einar 37 vikur, svo það fer alveg að koma að þessu, stelpa, strákur, strákur, stelpa... who knows,það eru allavega 50% líkur á báðu. Bæði betra.
Annars sit ég bara hérna í "chillinu" & safna orku fyrir annað kvöld. Kíkti aðeins á Ingu & Gunnu vinkonu hennar síðasta föstudag, rosa fínt bara.Drukkum smá hvítvín & rauðvín, en afskaplega rólegt. Kittý kom með mér & komum við aftur hingað heim um 7 & þá.... gerðust einhverjir hlutir sem ég nenni ekkert að tala um, en Kittý er í sálfræðitímum. Sagðist þurfa frí frá mér allavega næsta mánuðinn.
Guttinn minn er komin með pláss á nýja leikskólanum á bara eftir að funda & taka ákvörðun um hvenær hann byrjar. Gengur allt ljómandi með hann.
Ég mun kannski blogga eitthvað smá um hvernig afmælisveislan fer en annars er blogglægð yfir mér þessa daganna... lítið að gerast..þannig.
LadyLilja
föstudagur, 8. febrúar 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli